Face Halo Cherry er byltingarkenndur farðahreinsir sem notar örtrefja til að hreinsa farða af aðeins með vatni. Face Halo Cherry er eiturefnalaus og margnota og kemur í stað 500 einnota farða/blautklúta. Til að fjarlægja farða og/eða þrífa andlitið þarf ekki að nudda Face Halo Cherry fast. Örtreflarnir eru 100x minni en mannshár og fara því auðveldlega ofan í húðholur og djúphreinsar húðina. Þar sem engin efni koma til sögu þá hentar Face Halo Cherry allir húð – einnig vandamálahúð og ofnæmispésum. Face Halo Cherry tekur af allan farða, meira að segja vatnsheldan – aðeins með vatni! En Face Halo Cherry má einnig nota með farðahreinsi fyrir þá sem kjósa það og getur því komið í stað einnota bómullarhnoðra. Einnig er hann æðislegur til að þrífa af maska. 3 saman í pakka svo að þú átt alltaf til hreinan Face Halo Cherry. Þegar það er kominn tími til að endurnýja Face Halo Cherry þá tökum við á móti þeim hreinum og þurrum og endurvinnum. Cruellty Free og Vegan – samþykkt af Peta.Bleytið Face Halo Cherry í volgu eða köldu vatni, vindið aðeins og strjúkið farða mjúklega af húðinni. Til að ná augnförðun af, haldið Face Halo Cherry upp að auganu í nokkrar sekúndur til að leysa upp farðann og nuddið varlega – það þarf alls ekki mikinn núning til að ná öllu af. Eftir notkun þrífið Face Halo Cherry með sápu í vaskinum til að ná sem mestu úr og látið þorna. Mikilvægt er að nota góða náttúrulega sápu og skola vel úr svo ekkert sitji eftir í klútinum. Face Halo Cherry má svo þvo í þvottavél og mælum við með að gera það 1x í viku að minnsta kosti. Ekki nota mýkingarefni.
Face Halo Cherry er byltingarkenndur farðahreinsir sem notar örtrefja til að hreinsa farða af aðeins með vatni. Face Halo Cherry...