Náttúrulegur og frískandi skrúbbur fyrir húðina. Sérstaklega rakagefandi andlitsskrúbbur sem gefur húðinni þinni heilbrigðan ljóma. Áhrifarík hreinsun Þegar Marc Inbane skrúbburinn er notaður verður hann svartur vegna svartra aðsogsagna úr kolefni. Þessar agnir bindast óhreinindum svo sem fitu og hafa sérlega bakteríudrepandi eiginleika. Þetta stuðlar að því að húðin hreinsast vel. Náttúrulegir eiginleikar hans stuðla að endurnýjun ysta húðlagsins. Það leiðir til þess að húðin hefur betri möguleika á að viðhalda raka sem um leiðr gerir húðina móttækilegri fyrir hverjum þeim húðvörum sem bornar eru á í kjölfarið. Skrúbburinn var sérstaklega hannaður til að vera notaður með Marc Inbane brúnkuspreyinu. Með því að nota skrúbbinn á undan spreyinu verður húðin sléttari og liturinn endist lengur. Eftir að hafa þvegið þér í framan, berðu lítið magn af skrúbbinum á raka húð. Nuddaðu léttilega með fingurgómunum með hringlaga hreyfingum og leggðu ríka áherslu á T-svæðið en forðastu augnsvæðið. Hreinsaðu með vatni. Notaðu einu sinni til þrisvar í viku eftir því hvernig húðgerð þín er.
Náttúrulegur og frískandi skrúbbur fyrir húðina. Sérstaklega rakagefandi andlitsskrúbbur sem gefur húðinni þinni heilbrigðan ljóma. Áhrifarík hreinsun Þegar Marc Inbane...