20-90% afsláttur & kaupauki fylgir pöntunum sem ná 10.000kr - Enginn sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr*
Kringlan
511 13136.630 kr.
Lýsing á vöru
Eight Hour kremið hefur haldið vinsældum sínum öll þessi ár og í dag hefur það unnið yfir 100 verðlaun fyrir sína fjölbreyttu formúlu sem veitir samstundis hámarks árangur. Eight Hour kremið veitir húðinni djúpa næringu og verndar hana hvar og hvenær sem er. Túpan er mjög hentug í töskuna og hentar því fólki á ferðinni fullkomlega. Á aðeins 8 klukkutímum er hámarks árangri náð; húðin orðin full af raka, hefur róast og endurnýjað sig og áferð hennar er jafnari og fallegri. Eight Hour kremið er ekki eingöngu ætlað fyrir andlit en það má nota ýmsa vegu með frábærum árangri. Nota má kremið til að næra hendur, fætur, veita aukinn ljóma, móta augabrúnir eða róa húðina eftir rakstur eða vax. Möguleikarnir eru endalausir.
Förðunarfræðingar kalla Eight Hour-kremið litla leyndarmálið þeirra til að móta augabrúnir og veita höndum, fótum og andliti náttúrulegan ljóma. Kremið er einnig vinsælt á meðal flugfreyja til að viðhalda rakastigi húðarinnar í háloftunum.
Notkun:
Kremið má vera á allt andlit og líkama. Það hentar vel sem varasalvi, á naglabönd, á sár eða bruna, fyrir aukinn ljóma á kinnbein eða glans á augnlok.
Eight Hour kremið hefur haldið vinsældum sínum öll þessi ár og í dag hefur það unnið yfir 100 verðlaun fyrir...