Zinc rúlla sem vinnur nuddar, tónar, stinnir og birtir til húðina með stálkúlum. Rúllan örvar blóðflæðið. Einnig er sniðugt að setja á sig olíu eða serum með rúlluna og nudda vöruna inn í húðina með henni. Hvernig er best að nota? Rúllið upp og út yfir húðina. Eftir hverja stroku byrjið þá aftur niðri. Best er að byrja á kjálkanum og vinna sig svo upp að eyra. Til að rúlla kinnarnar byrjið þá að vinna frá nefi og upp að eyra. Undir augun er best að byrja í innri augnkrók og vinna sig út. Fyrir ennið er best að byrja á miðju enni og út. Endurtakið 4-5x á hverju svæði fyrir sig. Gott er að geyma rúlluna í kæli. PETA samþykkt, Cruelty Free og Vegan.
Zinc rúlla sem vinnur nuddar, tónar, stinnir og birtir til húðina með stálkúlum. Rúllan örvar blóðflæðið. Einnig er sniðugt að...