CeraVe Resurfacing Retinol Serum jafnar og bætir áferð húðarinnar með því að vinna á litablettum eftir bólur og minnka svitaholur. Formúlan inniheldur Retinol sem hjálpar til við að endurnýja húðina, auk Lakkrísrótarþykkni og Niacinamide sem sefar húðina og gerir hana bjartari og sterkari. Að auki er serumið samsett úr þrem nauðsynlegum Ceramides sem vinna saman að því að læsa rakanum inni og hjálpa til við að styrkja ysta lag húðarinnar. Formúlan inniheldur MVE tækni sem stuðlar að því að húðin fær jafna næringu allan daginn og allt að 24 tíma raka. Hentar öllum húðgerðum. Ilmefnalaus, án parabena og er non comedogenic og stíflar því ekki svitaholur. Þróað með húðsjúkdómalæknum.
CeraVe Resurfacing Retinol Serum jafnar og bætir áferð húðarinnar með því að vinna á litablettum eftir bólur og minnka svitaholur....