20-90% BLACK FRIDAY AFSLÁTTUR - Enginn sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr*
Kringlan
511 13133.848 kr. 4.810 kr.
Lýsing á vöru
Krulluhetjan okkar! Curliosity Conditioner & co-wash er umhverfisvæn krulluhárnæring í föstu formi sem er samsett í samræmi við krullu umhirðureglur CGM.
Næringin inniheldur blöndu rakagefandi efna eins og jójóbaolíu, shea og kakósmjör sem mýkja, næra og greiða úr krullunum. Ertu meira fyrir co-wash? Næringin inniheldur einnig laxerolíu svo hún hreinsar á einstaklega mildan hátt án þess að þurrka hárið. Hún virkar einnig sem leave-in næring ef hárið skortir enn meiri raka. Þú finnur engin sílikon, vax eða þurrkandi alkóhól í þessum netta kubb, bara mild og vel ilmandi efni sem hreinsa og næra hárið án þess að þyngja það. Þessi magnaði kubbur jafnast á við 9 x 350 ml brúsa af hefðbundinni, fljótandi næringu. Til þess að kubburinn endist sem best skaltu geyma hann í íláti þar sem hann helst þurr.
Notkun:
Renndu Curliosity kubbnum niður blautt hárið 4 til 5 sinnum. Leggðu frá þér kubbinn og nuddaðu næringunni í hárið. Leyfðu næringunni að bíða í hárinu í 1 til 2 mínútur áður en þú skolar hana úr. Ef þú vilt nota Curliosity sem Co-wash skaltu nudda kubbnum vel í rótina og skola síðan vel. Við mælum þó með að nota freyðandi sjampó eins og Professor Curl með 3 til 4 vikna millibili til þess að minnka hættuna á sveppasýkingu.
ATH að ef þú ert með báða krullukubbana (Professor Curl Shampoo og Curliosity Conditioner) þá komast þeir ekki saman í Ethique geymsluboxin. Cruelty Free, Vegan og án Pálmolíu.
Krulluhetjan okkar! Curliosity Conditioner & co-wash er umhverfisvæn krulluhárnæring í föstu formi sem er samsett í samræmi við krullu umhirðureglur...