Liplinerinn hefur snúið aftur til vinsælda með skelli. Hvort sem þú vilt ramma inn varirnar eða teikna algerlega nýjar varir, þá eru þessi trend komin til að vera og Perfect Precision Lipliner er mættur til að hjálpa. Dragðu fullkomlega nákvæmar línur til að endurhanna varalagið þitt án þess að hann rífi í húðina eða molni á vörunum. Ekki of mjúkur en þó heldur ekki of vaxkenndur, hann er eiginlega Gullbrá liplineranna. Fylltu út í varirnar eða settu lag af varalit yfir til að læsa litinn inni og auka endinguna. Hver varablýantur er úr tré úr sjálfbærum skógum þannig að þú getur sleppt samviskubitinu og litið vel út á meðan. Djúpir, sterkir litir. Mótaðu, rammaðu inn og skerptu á vörunum. Mjúk, endingargóð formúla. Búinn til úr tré úr sjálfbærum skógum. Ekki prófaður á dýrum.
Liplinerinn hefur snúið aftur til vinsælda með skelli. Hvort sem þú vilt ramma inn varirnar eða teikna algerlega nýjar varir,...