20-90% afsláttur & kaupauki fylgir pöntunum sem ná 10.000kr - Enginn sendingarkostnaður á pöntunum yfir 15.000 kr*
Kringlan
511 13134.296 kr. 5.370 kr.
Lýsing á vöru
Þetta er C-vítamín en ofurhlaðið. Glænýtt og nýstárlegt markvisst augnkrem með 10% blöndu innihaldsefna sem gera augnsvæðið bjartara ásýndar og frísklegra. C-vítamín sem er þess virði að vakna fyrir. Glænýtt og nýstárlegt markvisst augnkrem með 10% blöndu innihaldsefna sem birta upp augnsvæðið. Samanstendur af 5% C-vítamíni af þrennskonar gerðum en þetta virka andoxunarefni gerir augnsvæðið bjartara ásýndar. Formúlan inniheldur að auki ferúlsýru til að auka áhrif C-vítamínsins, peptíð, koffín og níasínamíð til að hjálpa til við að stinna og tóna húðina, draga úr baugum og slétta augnsvæðið. Klínískt sannað. Klínískt sannað að það dregur úr ásýnd bauga á 4 vikum* Klínískt sannað að það dregur úr ásýnd augnpoka á 4 vikum* Klínískt sannað að það dregur úr augnþrota á 4 vikum* Klínískt sannað að það dregur úr krákufótshrukkum á 4 vikum* Af hverju að nota blöndu virkra efna? Hreina formið af C-vítamíni, askorbínsýra, er þekkt fyrir að vera óstöðugt og viðkvæmt fyrir oxun (sem leiðir til þess að það verður brúnt) með hita, ljósi, lofti og vatni en það hefur áhrif á virkni þess. Með því að nota stöðugri afleiður af C-vítamíni í formúlunni okkar þá tryggir það hægari oxun, sem þýðir minni mislitun og lengra geymsluþol, svo húðin þín getur notið allra ótrúlegra kosta C-vítamíns lengur. 90% eru sammála um að baugar virka minna áberandi* 96% eru sammála um að dregið hafi úr augnþrota* 96% eru sammála að þetta sé eitt áhrifaríkasta augnkrem sem þeir hafi notað* 100% eru sammála því að augnsvæðið er rakameira eftir notkun* Hvernig virkar það? 5% C-vítamín: Samverkandi samsetning 3 stöðugra forma af C-vítamíni til að tryggja stöðugri og áhrifaríkari formúlu. 3% Meiview: Hjálpar til við að styrkja og tóna augnsvæðið. 1% Koffín: Hjálpar til við að slétta húðina og gera augnsvæðið bjartar. 1% Haloxyl: Hjálpar til við að draga úr baugum og þrota. Þessi formúla er ilmefnalaus til að vera mild á viðkvæmu augnsvæðinu. Náttúrulegi ilmurinn af C-vítamíni kann að finnast fyrst en hverfur fljótt. *Byggt á klínískri rannsókn á 30 manns í 4 vikur, notkun dags og morgna.
Notkun: Skref 2 i húðrútínu þinni – meðhöndlun. Hægt að nota daglega á morgnana – sjá ábendingar hér að neðan. Notaðu lítið magn og berðu varlega í kringum augnsvæðið. RÚTÍNA Til að ná sem bestum árangri skaltu nota augnkremið sem hluta af fullri Vitamin C Fix-rútínu: Skref 1: Hreinsaðu með því að nota Vitamin C Fix Cleanser. Skref 2: Fylgdu því eftir með Vitamin C Brightening Pads. Skref 3: Berðu Vitamin C Fix Eye Cream 10% á augnsvæðið. Skref 4: Notaðu 2-3 dropa af Vitamin C Fix Concentrate. Skref 5: Ljúktu rútínunni með Vitamin C Fix Hybrid Gel Cream. ÁBENDINGAR Auk þess að hafa öflug birtandi áhrif þá býr C-vítamín einnig yfir virkni til að draga úr öldrunarmerkjum. Það hjálpar til við framleiðslu á kollageni, sem styður uppbyggingu húðarinnar, og leiðir þannig til fyllingaráhrifa. Að nota C-vítamín og retínól saman er öflug leið til að draga úr fínum línum og hrukkum en við mælum ekki með því að nota þessi virku efni saman á sama tíma, svo haltu þig við annað á morgnana og hitt á kvöldin. Notaðu Vitamin C Fix Eye Cream 10% í morgunrútínunni og Retinol Fix Eye Treatment 2% í kvöldrútínunni. Notaðu sólarvörn á morgnana sem síðasta skrefið í húðrútínu þinni. Við mælum með Illuminating SPF 30 frá Nip+Fab en þessi sólarvörn var sérstaklega hönnuð til að vernda húðina og auka ljóma hennar eftir notkun á Vitamin C Fix-húðvörunum.
Þetta er C-vítamín en ofurhlaðið. Glænýtt og nýstárlegt markvisst augnkrem með 10% blöndu innihaldsefna sem gera augnsvæðið bjartara ásýndar og...