Blandar saman áhrifum hreinsivöru, skrúbbs og maska og sameinar 5 kosti! Kremið hreinsar húðina, mýkir og sléttir, endurnærir og gerir hana náttúrulega fallega. Skrúbburinn hreinsar húðina mjúklega án þess að valda ofþornun. Face Cleanup er hreinsivara sem hreinsar óhreinindi mjúklega úr húðinni, birtir yfir henni og opnar stíflaðar svitaholur. Í vörunni er greipaldinfræjaolía sem hjálpar til við að fjarlægja dauðar húðfrumur, veitir raka og viðheldur rakajafnvægi húðarinnar. Auk þess viðheldur varan teygjanleika húðarinnar og gerir hana mjúka. Annar eiginleiki skrúbbsins sem skilur hann frá öðrum andlitshreinsivörum er að hann inniheldur salisýlsýra sem kemur í veg fyrir myndun fílapensla, gerir svitaholur minna sýnilegar með því að hreinsa upp úr þeim óhreinindi og olíur auk þess að sporna ið ýmsum húðvandamálum. Ef skrúbburinn er notaður reglulega hjálpar hann til við að draga úr húðlýtum og hrukkum en hvítur leirinn sem notaður er í vöruna dregur úr grófu útliti húðar. Skrúbburinn nærir húðina, þéttir og veitir henni fallegan gljáa. Face Cleanup skrúbburinn er borinn gætilega á andlit og háls og er ætlaður til daglegra nota en ætti ekki að notast á augnsvæðið. Til að nota kremið sem skrúbb er það borið á blautt andlitið með hringlaga hreyfingu og er svo skolað af með volgu vatni. Ef nota á kremið sem maska er það borið gætilega á andlitið og það látið standa í 3-5 mínútur áður en það er hreinsað af með miklu, volgu vatni.
Blandar saman áhrifum hreinsivöru, skrúbbs og maska og sameinar 5 kosti! Kremið hreinsar húðina, mýkir og sléttir, endurnærir og gerir...